Eignaskanni ehf., eigandi þjónustuvefs Eignaskannans, eignaskanni.is, (hér eftir „Eignaskanninn“) hefur það að markmiði að tryggja ábyrga og örugga vinnslu allra persónuupplýsinga sem unnið er með og skuldbindur sig til að vinna aðeins með persónuupplýsingar á þann hátt sem lýst er í persónuverndarstefnu þessari og samræmist ákvæðum laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/679 (GDPR) (hér eftir sameiginlega „persónuverndarlöggjöf“). Vinsamlega kynntu þér persónuverndarstefnu þessa vel og vandlega. Ef þú samþykkir ekki efni hennar getur þú ávallt hætt að nota þjónustu Eignaskannans.
Ábyrgðaraðili er Eignaskanni ehf., kt. 640826-0450, Akralind 6, 201 Kópavogi. Netfang: info@eignaskanni.is.
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling. Sá telst persónugreinanlegur ef hægt er að tengja hann, beint eða óbeint, við upplýsingar svo sem með tilvísun í nafn, kennitölu, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem teljast til einkenna og aðgreina hann frá öðrum. Persónuupplýsingar skiptast í almennar og viðkvæmar persónuupplýsingar. Ópersónugreinanleg gögn falla utan persónuverndarlöggjafarinnar.
Hinn skráði er einstaklingur sem persónuupplýsingarnar varða hverju sinni (hér einnig „þú“ eða „notandi“).
Vinnsla er sérhver aðgerð eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnsla er sjálfvirk eða ekki, s.s. söfnun, notkun og varðveisla þeirra.
Ábyrgðaraðili er sá sem ber ábyrgð á því að sú vinnsla sem fer fram á hans vegum samrýmist persónuverndarlöggjöf og ákveður tilgang vinnslunnar og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga.
Vinnsluaðili er sá sem vinnur persónuupplýsingar á vegum eða fyrir hönd ábyrgðaraðila á grundvelli vinnslusamnings.
Samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga telst vera óþvinguð, sértæk, upplýst og ótvíræð viljayfirlýsing hins skráða um að hann samþykki, með yfirlýsingu eða ótvíræðri staðfestingu, vinnslu persónuupplýsinga um sig.
Persónuverndarstefna þessi gildir um alla starfsemi í tengslum við þjónustuvef Eignaskannans þar sem vinnsla persónuupplýsinga fer fram en tekur þó aðeins til einstaklinga, ekki lögaðila. Séu einstaklingar í forsvari fyrir viðskiptavini sem eru lögaðilar gilda ákvæði stefnunnar um þá einstaklinga eftir því sem við getur átt.
Persónuverndarstefna þessi gildir einungis fyrir notkun þína á þjónustuvefnum eignaskanni.is. Á síðunum kunna að vera tenglar á aðrar vefsíður sem persónuverndarstefna þessi nær ekki yfir. Vinsamlega kynntu þér persónuverndarstefnu þeirra vefsíðna áður en þú afhendir þeim persónuupplýsingar.
Hinn skráði á rétt á því að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að tryggja réttindi hans samkvæmt ákvæðum persónuverndarlöggjafar. Eignaskanninn leggur áherslu á að tryggja eftirfarandi réttindi:
Til að nýta réttindi þín getur þú haft samband við Eignaskannann á netfangið info@eignaskanni.is.
Það hvaða persónuupplýsingum er safnað um þig fer eftir notkun þinni á vefsíðu Eignaskannans. Vinnslan fer fram á þeim heimildum sem lýst er í 6. kafla þessarar stefnu.
Þegar þú innskráir þig með Google- eða Apple-reikningi, stofnar til áskriftar eða notar vefsíðuna á annan hátt, safnar Eignaskanninn grunnupplýsingum um þig eins og nafni, netfangi, auðkennisupplýsingum frá innskráningarþjónustu og öðrum upplýsingum sem þú velur að veita. Þá safnar Eignaskanninn þeim upplýsingum sem þú leggur fram um fasteignir, þ.m.t. heimilisföngum, lýsingum og ljósmyndum af eignum sem þú hleður upp til greiningar, sem og upplýsingum um hegðun og notkun þína á þjónustunni.
Eignaskanninn kann að nota þær upplýsingar sem þú afhendir til að kalla eftir frekari upplýsingum frá þriðja aðila og opinberum skrám, eins og upplýsingum um fasteignir, fasteignamat og sölugögn, svo unnt sé að veita þá þjónustu sem þú óskar eftir. Slík upplýsingaöflun byggist ávallt á því að sérstök heimild sé til staðar. Dæmi um slíka aðila eru fasteignaskrá, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (kaupskrá), opin staðsetningargögn og fasteignaauglýsingar.
Til að framkvæma verðmat og greiningu nýtir Eignaskanninn sjálfvirka úrvinnslu með gervigreind. Upplýsingar um fasteign, þ.m.t. myndir og lýsingar sem þú leggur fram, eru sendar til vinnsluaðila sem reka gervigreindarþjónustu, þar á meðal Google (Gemini), OpenAI og Anthropic (Claude). Vinnslan kann að fara fram utan EES. Þegar persónuupplýsingar eru fluttar út fyrir EES er stuðst við viðurkennda flutningsheimild samkvæmt persónuverndarlöggjöf, svo sem ákvörðun um fullnægjandi vernd eða staðlaða samningsskilmála framkvæmdastjórnar ESB, eftir því sem við á. Liður í þjónustunni kann að vera byggður á sjálfvirkri greiningu persónuupplýsinga, en Eignaskanninn tekur ekki bindandi ákvarðanir um réttindi eða skyldur notanda á grundvelli slíkrar vinnslu nema notandi sé sérstaklega upplýstur um slíkt.
Eignaskanninn notar þjónustuveitendur vegna hýsingar, auðkenningar, gagnageymslu, samskipta, gervigreindar og tæknilegs eftirlits. Þar á meðal eru Google Firebase og Google Cloud, Google og Apple vegna innskráningar, Google, OpenAI og Anthropic vegna gervigreindar, VPNAPI.io vegna varna gegn misnotkun ókeypis aðgangs og Axiom vegna afmarkaðra tækni- og villuskráa. Þessir aðilar fá aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita viðkomandi þjónustu.
Kortagreiðslur fara fram á greiðslusíðu Straums. Plús-áskrift er rekin í áskriftarkerfinu Repeat (repeat.is), sem skuldfærir í gegnum Straum og getur sent kvittanir og tilkynningar á netfang. Eignaskanninn fær hvorki né geymir kortanúmer. Eignaskanninn vistar pöntunarupplýsingar: pöntunarnúmer, vöru, upphæð, stöðu greiðslu, tíma kaupa og þá útgáfu kaupskilmála sem kaupandi samþykkti. Þær upplýsingar eru nauðsynlegar til að efna samning, svara kvörtunum og endurkröfum og uppfylla bókhaldsskyldu, og eru varðveittar eins lengi og lög nr. 145/1994 um bókhald krefjast.
Eins og flestar vefsíður kann vefsíða Eignaskannans að safna ákveðnum upplýsingum sem tengjast þér og tækinu sem þú notar, eins og IP-tölu, gerð tækis, stýrikerfi og tegund vafra. Þessar upplýsingar eru notaðar til að tryggja öryggi þjónustunnar, framfylgja notkunarmörkum og greina tæknileg vandamál. Tæknin sem notuð er fyrir þessa sjálfkrafa gagnaöflun getur m.a. falist í notkun vefkaka (e. cookies). Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar í tölvu eða snjalltæki þínu þegar þú heimsækir vefsíðuna og gera vefsíðunni kleift að muna nauðsynlegar stillingar.
Þegar óinnskráður notandi óskar eftir ókeypis greiningu er IP-talan send til VPNAPI.io til að kanna hvort tengingin sé VPN, proxy, Tor eða Private Relay. Eignaskanninn vistar ekki hráa IP-tölu í gagnagrunni vegna þessa kvóta, heldur einhliða dulnefni sem er búið til með leynilykli (HMAC), ásamt stöðu þess hvort ókeypis greining hafi verið notuð. Dulnefnið er varðveitt á meðan boðið um eina ókeypis greiningu á hverja nettengingu er í gildi svo unnt sé að framfylgja notkunarmörkunum.
Vefurinn notar nauðsynlega staðbundna geymslu í vafra til að muna val á gervigreindarþjónustu og tímabundinn notkunarkvóta. Slík geymsla er nauðsynleg fyrir umbeðna virkni og öryggi þjónustunnar.
Með sérstöku samþykki teljum við notkunarskref án eignargagna, mynda, netfangs eða reikningsauðkennis. Tilgangur er að finna brottfall og bæta þjónustuna. Samþykki má afturkalla neðst á síðunni. Tímabundið slembiauðkenni í vafra og tímabundin óbein auðkenni fyrir fjöldatakmörkun eru notuð til að forðast tvítalningu; þau eru merkt til eyðingar eftir tvo daga og sjálfvirk hreinsun getur tekið lengri tíma. Daglegar samtölur geyma ekki þessi auðkenni. Vinna við eign getur geymst tímabundið í vafranum í eina klukkustund til að halda áfram eftir innskráningu. Hægt er að hreinsa hana í Greiningu. Eignaskanninn notar ekki Google Analytics. Ef þú samþykkir notkunarmælingar vistar vefurinn vafrakökur
og staðbundna geymslu frá tveimur þjónustuaðilum: PostHog, sem telur heimsóknir og notkunarskref
(vafrakaka sem byrjar á ph_), og Meta Platforms, sem mælir árangur auglýsinga með Meta Pixel
(vafrakakan _fbp). Með samþykki er einnig munað í vafranum hvaða útgáfu viðmóts þú færð í
samanburðarprófunum. Eitt samþykki nær til alls þessa og engar slíkar vafrakökur eru vistaðar fyrr en það
liggur fyrir, sbr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti. Heimilisföng, myndir, netföng og
reikningsupplýsingar eru ekki sendar þessum aðilum. Ef samþykki er afturkallað er þessum vafrakökum og
geymslu eytt úr vafranum.
Eignaskanninn safnar almennt ekki viðkvæmum persónuupplýsingum, s.s. heilsufarsupplýsingum, upplýsingum um þjóðerni, trúarbrögð o.fl., og notanda er ráðlagt að hlaða ekki upp slíkum upplýsingum.
Eignaskanninn safnar framangreindum upplýsingum í þeim tilgangi að:
Að meginstefnu til byggir vinnsla persónuupplýsinga um þig á samningssambandi milli þín og Eignaskannans um tiltekna þjónustu eða ráðstöfunum að beiðni þinni áður en samningur er gerður. Vinnsla vegna öryggis, rekjanleika, tæknilegra villna, þjónustuþróunar og meðferðar kvartana kann að byggjast á lögmætum hagsmunum Eignaskannans. Markaðsskilaboð og ónauðsynleg rakning byggjast á samþykki þegar þess er krafist. Önnur vinnsla kann að byggjast á lagaskyldu.
Eignaskanninn gætir þess í hvívetna að vernda persónuupplýsingar með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óheimila notkun, afritun, afhendingu til þriðja aðila, sem og til að fyrirbyggja að upplýsingar glatist, séu ranglega skráðar eða að önnur misnotkun eigi sér stað. Persónubundnar aðgangsstýringar, dulkóðun og notkun gerviauðkenna eru dæmi um slíkar öryggisráðstafanir. Viðeigandi ráðstafanir eru notaðar við hýsingu og flutning persónuupplýsinga í samræmi við kröfur persónuverndarlöggjafarinnar. Þá leggur Eignaskanninn áherslu á að brugðist sé við öryggisbrotum í samræmi við verklagsreglur og ákvæði persónuverndarlöggjafar.
Persónuupplýsingar eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til að Eignaskanninn geti sinnt þeirri þjónustu sem er í boði og í samræmi við upphaflegan tilgang vinnslunnar. Meginreglan er að aðgangs- og þjónustugögn eru geymd meðan aðgangur er virkur og eftir lok hans eins lengi og nauðsynlegt er vegna lögmætra rekstrar-, öryggis- eða réttarkrafna. Vistaðar skýrslur eru varðveittar þar til notandi eyðir þeim eða aðgangi er lokað, nema önnur heimild eða lagaskylda krefjist lengri varðveislu. Ef sérlög kveða á um skyldu til að varðveita tiltekin gögn lengur, s.s. lög nr. 145/1994 um bókhald, ganga þau framar.
Persónuverndarstefnan kann að taka breytingum vegna breytinga á löggjöf, starfsemi félagsins eða öðrum ástæðum sem kunna að kalla á slíkt. Komi til breytinga verða þær aðgengilegar á vefsvæði Eignaskannans og gildisdagur uppfærður. Verulegar breytingar verða kynntar með viðeigandi hætti. Ef breytingar fela í sér nýja vinnslu persónuupplýsinga sem krefst samþykkis verður óskað eftir því sérstaklega.
Ef þú telur að brotið hafi verið á rétti þínum vinsamlega hafðu samband og við tökum erindi þitt til skoðunar. Fyrirspurnir, athugasemdir og ábendingar sem varða persónuupplýsingar og persónuvernd má senda á netfangið info@eignaskanni.is.
Komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga er unnt að senda kvörtun til Persónuverndar á netfangið postur@personuvernd.is eða með því að senda bréfpóst til Persónuverndar, heimilisfang: Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík. Sjá nánar á vefsíðunni www.personuvernd.is.
Útgáfa 3, gildir frá 4. október 2026.